Ernir Bifhjólaklúbbur Suðurnesja

Vafraðu um


Ernir Bifhjólaklúbbur Suðurnesja

Nafn:

Formaður Pálmi Hannesson

Afmælisdagur:

27-04-2001

Um:

Félagsfundir kl 20. alla fimmtudaga

Næsti félagsfundur Arna fimmtudag kl 20

atburður liðinn í

2 daga

Fiskidagurinn á Dalvík

eftir

7 daga

Ljósanótt 4 sept 2010

eftir

1 mánuð

4 daga

clockhere

Fréttir

25.2.2010

Frestað vegna veðurs !

emoticon 

Vegna slæms veðurs verður ekki opið hús í kvöld, næsta opnun verður næsta fimmtudag 4. mars kl. 20:00, munum þá sýna myndina sem átti að vera í kvöld.

Skrifað 25.2.2010 kl. 16:10 af Pálma

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

24.2.2010

Opið hús ! 

Fimmtudaginn 25. febrúar er opið hús, opnað kl. 20:00, sýnd verður mynd frá mótorhjólahátíðinni í Sturgis í Bandaríkjunum, þetta er hátíð sem er haldin í ágúst ár hvert og koma saman um áttahundruð til ein miljón hjólafélaga, hátíðin sem haldin verður á þessu ári er sú sjötugasta !

Skrifað 24.2.2010 kl. 21:47 af Stjórnin

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

24.2.2010

Þorrablóti aflýst !

Vegna lítillar þátttöku hefur stjórn klúbbsins ákveðið að fella niður þorrablótið sem halda átti 27. febrúar.  emoticon

Skrifað 24.2.2010 kl. 21:37 af Pálmi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

14.2.2010

Til sölu

Nýtt á til sölu síðunni.
emoticon 

Skrifað 14.2.2010 kl. 11:55 af KGB

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

11.2.2010

Opið hús í Arnarhreiðrinu


Sjá mynd í fullri stærð





Minna á að það er opið hús í kvöld í Arnarhreiðri. 

Sjáumst hress.
Kveðja stjórnin

Skrifað 11.2.2010 kl. 9:35 af KGB/ÞJ

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

8.2.2010

Þorrablót

Sjá mynd í fullri stærð 

Þorrablót 27. feb 2010


Kæru Arnarfélagar

Nú er komið að því að halda Þorrablót í annað sinn þar sem síðasta tókst svo vel.

Verð 3.000 kr á mann

Skráning fyrir 20 feb 2010  í

netfang: sunnubraut14@internet.is eða síma 821-5222 Þórhallur

Kveðja

Skemmtinefnd Arna

 
Þorrablót

Á Íslandi er siður að halda þorrablót í febrúar. Þorrablót er veisla, þar sem Íslendingar borða hefðbundinn íslenskan mat, drekka brennivín, syngja íslensk lög, kveða vísur og dansa gömlu dansana. Fyrstu þorrablótin voru haldin í kaupstöðum á Íslandi á nítjándu öld. Það var fólk, sem hafði flutt úr sveitunum í kaupstaðina á Íslandi, sem hélt þau. Líklega vildi fólkið fá að bragða matinn, sem það borðaði heima í sveitinni og hitta ættingjanna úr sveitinni. Þorrablótin voru síðan haldin af átthagafélögum, sem vildu minnast heimabyggðarinnar og sveitunganna.
Íslendingar erlendis nota þorrablótin til að halda upp á íslenska menningu og borða íslenskan mat.

Þegar Ísland var dönsk nýlenda, var Íslendingum bannað að nota salt. (Annars hefðu þeir getað saltað fisk og selt til annarra landa. Þá hefðu þeir getað grætt eigin peninga og orðið sjálfstæðir.) En Íslendingar notuðu aðrar aðferðir við að geyma mat. Maturinn var reyktur, þurrkaður, súrsaður eða kæstur. Flestir þorramatsréttir eru gerðir með þessum aðferðum.

Skrifað 8.2.2010 kl. 20:55 af KGB/ÞJ

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

3.2.2010

Nefndarstörf Arna

Ágætu félagar

Þeir sem áhuga hafa á að starfa í nefndum klúbbsins á þessu ári vinsamlega látið vita með því að senda póst
á
stjorn@ernir.com  fyrir 15. feb 2010
Kveðja Stjórnin

Skrifað 3.2.2010 kl. 11:11 af KGB

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

2.2.2010

Ný lög

  Lagabreytingar sem samþykktar voru 30.01.2010


 

 

5 gr. Inntaka.

 

Allt áhugafólk um bifhjól getur fengið inngöngu í félagið að því tilskyldu að skilyrði fyrir inntöku séu uppfyllt.  Inntökuskilyrði í félagið eru að:

 

1: Umsækjandi í Erni hafi áhuga á bifhjólum.

2. Umsækjandi hafi greitt fullt inntökugjald sem er óendurkræft

3.  Stjórn Arna þarf að yfirfara umsóknir og eftir atvikum samþykkja inngöngu nýrra félaga.

Innifalið er afnot af merki félagsins.

 

10 gr. Um aðalfund.

 

Haldinn skal aðalfundur fyrir lok janúar ár hvert.  Skal þar taka til venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum klúbbsins.  Stjórn boðar til aðalfundar með a.m.k. tuttugu daga fyrirvara og skal hann boðaður með tölvupósti til félagsmanna, auglýsingu í staðarblöðum og á heimasíðu félagsins.  Með fundarboði skulu fylgja tillögur að lagabreytingum ef einhverjar eru.  Eintak af endurskoðuðum ársreikingum skal liggja fyrir á aðalfundi

 

16.gr. Aukaaðalfundur.

 

Stjórn kveður til aukaaðalfundar þegar þess er þörf eða a.m.k. 1/5 hluti fullgildra félaga félagsins óski þess enda geri þeir áður grein fyrir fundarefni.  Til aukaaðalfundar skal boðað með tuttugu daga fyrirvara, með tölvupósti til félagsmanna, auglýsingu í staðarblöðum og á heimasíðu félagsins.

 

9. gr. Útgáfa.

 

Stjórn klúbbsins heldur úti heimasíðu www.123.is/ernir þar er hægt að finna ýmsan fróðleik og  gagnlegar upplýsingar.

 

12.gr. Stjórnarkjör.

 

Í Stjórn félagsins skulu kosnir 5 einstaklingar og tveir til vara. Rétt til stjórnarsetu hafa þeir sem hafa verið fullgildir félagar í klúbbnum í tvö ár.  Tilkynna þarf framboð til stjórnar skriflega til ritara klúbbsins eigi síðar en 15 janúar, framboðslista skal birta á heimasíðu klúbbsins 16 janúar.  Stjórn skal skipuð formanni, varaformanni, gjaldkera, tveimur meðstjórnendum og tveimur varamönnum.  Hver stjónarmeðlimur skal kosinn til tveggja ára.  Formaður, gjaldkeri, meðstjórnandi og einn varamaður skulu kosnir annað árið.  Varaformaður, meðstjórnandi og varamaður eru kosnir hitt árið.  Formaður má ekki sitja fleiri en tvö kjörtímabil í röð.  Kosningu hljóta þeir sem flest atkvæði fá.  Að auki skal kjósa tvo skoðunarmenn reikninga ásamt varamanni.

Verði atkvæði jöfn sker hlutkesti úr.

 

Skrifað 2.2.2010 kl. 0:14 af KGB

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 85
Gestir í dag: 15
Flettingar í gær: 460
Gestir í gær: 66
Samtals flettingar: 133778
Samtals gestir: 35258
Tölur uppfærðar: 31.7.2010 04:22:05