|
Ernir Bifhjólaklúbbur Suðurnesja |
|
Vafraðu umErnir Bifhjólaklúbbur Suðurnesja Nafn: Formaður Pálmi HannessonTölvupóstfang: stjorn(hjá)ernir.comAfmælisdagur: 27-04-2001Um: Félagsfundir kl 20. alla fimmtudagaEldra efni clockhere
|
Fréttir29.6.2010Landsmót Bifhjólafólks24.6.2010Nýtt til söluSkoða sölusíðuna 21.6.2010Reykjanesdagur og Sólseturshátíð
Laugardaginn 26. júní höldum við í Örnunum okkar árlega N1 dag, mæting er við N1 upp í Ásbrú ( sama stað og síðast ) þar sem boðið verður upp á grill, gos og kaffi, þá mun Nitró vera með kynningu á því sem þeir eru að selja, mæting er kl. 12:00, lagt verður síðan af stað frá N 1 kl. 13:15 og haldið út í Garð þar sem Sólseturhátiðin stendur yfir, þar verða hjólin til sýnis fyrir hátíðargesti, áætlað 30 mínútna stopp þar, úr Garðinum verður svo tekinn smá hjóltúr og endað upp í Icebike í Keflavík þar sem boðið verður upp á samlokur og drykki. Með hjólakveðju og von um að sjá sem flesta
Stjórn Arna 21.6.2010Miðnæturakstur Arna.Fimtudaginn 24 Júní munum við leggja af stað í hina árlegu miðnæturferð okkar lagt verður af stað kl 20:15 frá Arnarhreiðrinu. 18.6.2010GeysisferðGeysisferð verður farin kl 12.00 frá Arnarhreiðrinu á morgun Laugardag 19 Júní húsið opnar kl 11.30. Mætum sem flest og góða ferð. 11.6.2010Ernir styrktu Björgina um 100.000 krónurTekið af www.vf.isErnir styrktu Björgina um 100.000 krónurErnir, Bifhjólaklúbbur Suðurnesja, afhentu í gær Björginni 100.000 krónur sem söfnuðust í svokölluðu Arnarkasti sl. laugardag. Arnarkastið er skemmtilegur leikur bifhjólamanna sem hjóla á milli staða á Suðurnesjum og kasta teningum en um liðna helgi fóru Ernir einnig í hópkeyrslu á Sjóarann síkáta.
9.6.2010Arnarkast - Björgin
7.6.2010Dagskrá Júní 2010Júní. 17-20. Júní. Bíladagar Akureyri. 19. Júní. Hjólaskemmtun og kvöldvaka á Hólmavík 3.6.2010Minna á fundinn í kvöld.
Hjólakveðja stjórnin. 1.6.2010Arnarkast 5 júni 2010
Arnarkast Laugardaginn 5 júní næstkomandi munum við hjóla og taka þátt í skemmtilegum leik en allur ágóði af þessum leik mun renna til Bjargarinnar Geðræktarmiðstöðvar Suðurnesja hér í Reykjanesbæ. Það verða vegleg verðlaun í boði fyrir 1-2-3 sætið,en það sem skiptir mestu máli er að koma og hafa gaman af um leið og við styrkjum gott málefni. Afhending gagna verður í Arnarhreiðrinu Laugardaginn 5 júní. Kl. 11:00-12:00. Leikurinn hefst kl 12:00. Leikreglur. Það verða 3 teningar á fimm stöðum þar sem þátttakendur kasta teningunum. N1 Sjoppan í Garði. Sjoppan í Sandgerði . Planið við Bláa lónið. Kl. 14:00-14:30. (Hópkeyrsla á Sjóarann síkáta frá Bláa lóninu kl 14:30.) N1 Sjoppan í Vogum á Vatnsleysuströnd. Arnarhreiðrið kl. 18:00-18:30. Þátttökugjald 1.000 kr fyrir ökumenn og fimm hundruð fyrir farþega ef er. Grillveisla verður kl.19:00 í Arnarhreiðrinu. Verð 1000 kr. á mann í grillið, frítt fyrir börn yngri en 16 ár. |